Tenglar
Hér er að finna nokkra tengla inn á vefsíður stofnana sem koma að málum er varða efnistöku og tengla inn á vefsíður með efni um efnistöku.
Lagasafn Alþingis: Hér er að finna heildarsafn gildandi laga.
Reglugerðasafn: Hér er að finna heildarsafn gildandi reglugerða.
Stjórnartíðindi: Í A deild eru m.a. nýjustu lög og lagabreytingar, í B deild eru m.a. nýjustu reglugerðir og reglugerðabreytingar.
Skipulagsstofnun: Skipulagsstofnun fjallar um og veitir ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsmál, umhverfismat áætlana og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.
Umhverfisstofnun: Hlutverk Umhverfisstofnunar er að meðal annars að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Á heimasíðu stofnunarinnar má finna upplýsingar um friðlýst svæði og önnur svæði á náttúruminjaskrá.
Vegagerðin: Vegagerðin er veghaldari þjóðvega samkvæmt vegalögum nr. 80/2007. Vegagerðin hefur sett upp yfirlit yfir námur á landinu , sjá nánar á vegsjá Vegagerðarinnar. Á heimasíðu Vegagerðarinnar er einnig að finna leiðbeiningar um efnisrannsóknir og efniskröfur auk leiðbeininga um notkun sprengds bergs í vegagerð (sjá hér).
Landsvirkjun: Landsvirkjun er orkufyrirtæki og vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli og jarðvarma.
Landgræðsla ríkisins: Landgræðsla ríkisins vinnur að stöðvun jarðvegs- og gróðureyðingar, gróðureftirliti og gróðurvernd.
Orkustofnun: Orkustofnun fer með leyfisveitingar vegna rannsókna og nýtingar á auðlindum og orkuvinnslu.
Fiskistofa: Meginhlutverk lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu er að stuðla að sjálfbærri nýtingu laxfiska í ám og vötnum og vernda búsvæði þeirra í samvinnu við eigendur veiðiréttar og veiðifélög. Fiskistofa veitir heimildir til mannvirkja- og fiskvegagerðar og efnistöku við ár og vötn.
Veiðimálastofnun: Veiðimálastofnun stundar meðal annars rannsóknir á lífríki í ám og vötnum og er ráðgefandi varðandi lífríki og umhverfi áa og vatna, t.d. varðandi mannvirkjagerð.
Hafrannsóknastofnun: Hafrannsóknastofnun er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og fiskirannsókna og gegnir lögum samkvæmt mikilvægu ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu auðlinda hafsins. Stofnunin hefur þríþætt hlutverk, þ.e. að stunda rannsóknir á hafinu og lífríki þess, veita ráðgjöf til stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu á auðlindum hafsins og miðla upplýsingum til stjórnvalda, hagsmunaaðila í sjávarútvegi og almennings.