Ábyrgðaraðili
Þessi vefur um efnistöku og frágang er settur upp í samstarfi Vegagerðarinnar, Landsvirkjunar og Umhverfisstofnunar. Í stýrihópi sem hélt utan um verkefnið voru Gunnar Bjarnason og Matthildur B. Stefánsdóttir frá Vegagerðinni, Ragnheiður Ólafsdóttir frá Landsvirkjun og Björn Stefánsson frá Umhverfisstofnun. Sigurrós Friðriksdóttir hjá Umhverfisstofnun vann með stýrihópnum að uppsetningu vefsins og efnisöflun. Auk fyrrgreindra stofnana komu ýmsar aðrar stofnanir að verkefninu, annað hvort með því að leggja til efni á vefinn eða með yfirlestri og ábendingum um hvað betur mætti fara, sjá nánar hér.